Afbókun og breytingar fara eftir ferðaskilmálum og þjónustuverðskrá Heimsferða. Hér eru helstu atriðin; skilmálarnir í heild eru á síðunni Skilmálar.
Almennar ferðir í leiguflugi
Breytingargjald greiðist samkvæmt gildandi þjónustuverðskrá. Breytingar með minna en 6 vikna fyrirvara teljast sem afbókun. Afbókun leiðir til eftirfarandi endurgreiðslna:
Meira en 28 dögum fyrir brottför: Haldið eftir 50% af verði (lágmark staðfestingargjald).
8–27 dögum fyrir brottför: Haldið eftir 75% af verði.
7 dögum eða skemur fyrir brottför: Engin endurgreiðsla.
Staðfestingargjald
Staðfestingargjald er aðeins afturkræft innan viku frá því að pöntun er gerð og meira en 8 vikur eru í brottför. Staðfestingargjald í sérferðir er með öllu óafturkræft.
Sérferðir
Sérferðir eru ekki endurgreiddar þegar minna en 10 vikur eru í brottför. Breytingar eru metnar í hverju tilviki fyrir sig og kunna að valda viðbótarkostnaði.
Pakkaferðir í áætlunarflugi og flug eingöngu
Full greiðsla er gerð við bókun og er óendurkræf og óbreytanleg nema annað sé skýrt tekið fram. Engar endurgreiðslur fást vegna breytinga eða afbókana.
Ef ferðaskrifstofan aflýsir ferð
Sé ferð aflýst, eða farþegi riftir samningi þegar um verulega breytingu er að ræða á ferð áður en hún hefst, á farþegi rétt á fullri endurgreiðslu eða að taka í staðinn aðra sambærilega ferð ef ferðaskrifstofan getur boðið slík skipti.
Ferðatrygging
Viðskiptavinum er eindregið ráðlagt að kaupa ferðatryggingu og/eða forfallatryggingu.