Við erum alltaf tilbúin að hjálpa þér.
Veldu ferð á vefnum, skráðu farþega og gakktu frá greiðslu. Einnig er hægt að bóka í síma 595 1000 eða á skrifstofunni í Bæjarlind 6 í Kópavogi; þá bætist við bókunargjald, 3.900 kr. á mann.
Já, hægt er að kaupa flugsæti eingöngu. Athugaðu að þá er engin taska innifalin í flugi með Neos; töskur má kaupa við bókun.
Notaðu „Mín bókun“ með bókunarnúmeri og netfangi af staðfestingarpóstinum.
Staðfestingargjald er almennt 50.000 kr. á mann í almennar ferðir og greiðist við bókun. Fullnaðargreiðsla þarf að berast eigi síðar en 7 vikum fyrir brottför nema annað sé tekið fram. Í sérferðir og siglingar er staðfestingargjaldið hærra og lokagreiðsla 10 vikum fyrir brottför. Sjá skilmála og þjónustuverðskrá.
Já, gegn breytingargjaldi: 7.000 kr. á mann áður en ferðin hefst og 15.000 kr. á mann eftir að ferð er hafin. Breyting er til dæmis nafnabreyting eða breyting á ferðapöntun, gistingu eða annarri þjónustu. Breytingar með minna en 6 vikna fyrirvara teljast afbókun og ekki er hægt að breyta bókaðri ferð í tilboðsferð. Breytingargjald er óafturkræft.
Í almennum ferðum í leiguflugi: Meira en 28 dögum fyrir brottför er haldið eftir 50% af verði (lágmark staðfestingargjald), 8–27 dögum fyrir brottför 75% og 7 dögum eða skemur fyrir brottför er engin endurgreiðsla. Staðfestingargjald er aðeins afturkræft innan viku frá pöntun og ef meira en 8 vikur eru í brottför. Um sérferðir, pakkaferðir í áætlunarflugi og flug eingöngu gilda aðrar reglur; sjá afbókunarstefnu og skilmála.
Í pakkaferð með Neos er ein innrituð taska (allt að 20 kg) og handfarangur (allt að 8 kg, 55x40x20 cm) innifalin. Ef aðeins er keypt flugsæti er engin taska innifalin. Auka farangur má bóka hjá Heimsferðum allt að þremur virkum dögum fyrir brottför; eftir það við netinnritun eða á flugvellinum. Önnur flugfélög hafa aðrar heimildir; sjá síðurnar Neos flugupplýsingar og Önnur flugfélög.
Vefinnritun á vef Neos opnar 24 klst fyrir brottför. Veldu „tour operator“ og skráðu bókunarnúmer Heimsferða án bókstafa og nafnið eins og það er í bókun, án íslenskra sérstafa. Hefðbundin innritun í Keflavík hefst 2–2½ klst fyrir áætlaða brottför, innritunarborð loka 45 mínútum fyrir brottför og brottfararhliðið 30 mínútum fyrir brottför. Allir farþegar þurfa gilt vegabréf.
Ungabörn (0–23 mánaða) fá ekki úthlutað sæti og fargjald þeirra er 12.000 kr. fyrir báðar leiðir. Börn 4–14 ára sem ferðast án fullorðins fjölskyldumeðlims þurfa fylgd, sem kostar 16.500 kr. á fluglegg og er bókuð á skrifstofu Heimsferða. Skriflegt samþykki forráðamanns þarf ef ferð er bókuð fyrir einstakling undir 18 ára aldri.
Já. Hópar eru 20 farþegar eða fleiri. Sendu fyrirspurn og ósk um tilboð á hopar@heimsferdir.is og hópadeildin hefur samband innan 3 virkra daga. Fyrir smærri hópa má senda póst á sala@heimsferdir.is.
Láttu fararstjóra vita strax á staðnum, og starfsfólk gististaðarins ef málið varðar hann, svo hægt sé að leysa málið á meðan á dvöl stendur. Ef það tekst ekki skaltu senda skriflega ábendingu á sala@heimsferdir.is eins fljótt og hægt er og í síðasta lagi innan mánaðar frá því að ferðinni lauk, með fullu nafni, bókunarnúmeri, símanúmeri og ábendingunni. Öllum ábendingum er svarað en það getur tekið allt að 8 vikur.