Tilboð fyrir starfsmannahópa, félagasamtök og ferðaklúbba.
Á hverju ári ferðast tugþúsundir Íslendinga með Heimsferðum í borgarferðir, sólarferðir, sérferðir og aðrar sértækari ferðir. Oft er um að ræða starfsmannahópa í árshátíðarferð, félagasamtök eða ferðaklúbba. Það segir sína sögu að sömu hóparnir ferðast með Heimsferðum aftur og aftur – enda kappkostum við að veita góða þjónustu og tryggja að allt gangi snurðulaust fyrir sig.
Sendu okkur fyrirspurn og ósk um tilboð vegna hópferðar á netfang okkar hopar@heimsferdir.is. Fyrirspurn þín sendist beint á hópadeild sem verður í sambandi við þig innan 3 virkra daga.
Hópar samanstanda af 20 farþegum eða fleiri. Ef um smærri hóp er að ræða, vinsamlegast sendið póst á sala@heimsferdir.is.