Verð og farangursheimildir hjá öðrum flugfélögum sem Heimsferðir starfa með.
Hér að neðan má finna ýmsar hagnýtar upplýsingar um verð og farangursheimildir hjá öðrum flugfélögum sem Heimsferðir starfa með.
Mikilvægt er að hafa í huga stærð töskunnar, en hún þarf að passa í tilskilin hólf sem hægt er að finna á flugvöllum.
Lítill persónulegur hlutur (10 kg max) er alltaf innifalinn í verði. Þetta á við um t.d. lítil veski og tölvutöskur og þarf að passa undir sætið fyrir framan þig. Stærð farangurs má vera 42x32x25 cm.
Handfarangur (12 kg max) er yfirleitt* innifalinn í pakkaferð með Heimsferðum. Þetta á við um litlar „flugfreyjutöskur“ t.d. og verða þær að passa í farangurshólfið fyrir ofan sætin. Stærð farangurs má vera 56x45x25 cm.
Innritaður farangur (20 kg max) er innifalinn í pakkaferð með Heimsferðum. Hver farþegi má ferðast með allt að þrjár slíkar töskur. Verð fyrir auka þyngd má sjá í þjónustuverðskrá. Hver taska má ekki vera þyngri en 32 kg. Stærð farangurs má vera að hámarki 158 cm (lengd+breidd+hæð).
ATH! Ef aðeins er keypt flugsæti er aðeins innifalið lítill persónulegur hlutur.
Innritun: 23 kg. Handfarangur: 10 kg.
Innritun: 20 kg. Handfarangur: 5 kg (56x45x25 cm).